Ekki aukin virkni fyrir gos
„Skjálftavirknin á svæðinu hefur verið miklu minni en undanfarnar vikur eftir að fór að gjósa sem er alveg eðlilegt,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands sem staðið hefur vaktina í alla nótt. „Virknin jókst ekki rétt fyrir gos, alls ekki. En skjálftar sem náðu stærðinni tveimur fjölgaði þó hlutfallslega. Það hefði helst átt að gefa okkur vísbendingu um að gos væri í nánd. Hins vegar var þetta ekki það mikil virkni að manni fyndist alveg klárt að það væri að fara að gjósa.“
Steinunn segir gosið á Fimmvörðuhálsi kraftminna en þau sem þekkjast í Heklu og Vatnajökli. Því hafi skjálftavirknin verið minni. „En þar sem við höfum aldrei horft á eldvirkni á þessum stað á sama hátt og annars staðar þekkjum við ekki virknina eins vel.“
Í gær urðu nokkrir skjálftar á svæðinu af stærðinni 2-3. Frá 19. mars sl. hefur virknin færst austar og aðeins grynnkað á skjálftaupptökunum. „Þessi tilfærsla endaði svo í þessu gosi á Fimmvörðuhálsi,“ segir Steinunn.
Steinunn segir nokkur þekkt basalt-hraunlög á Fimmvörðuhálsi en þeim mætti lýsa sem „litlum og ræfilslegum“ miðað við önnur þekktari hraunlög.
Hún segir of snemmt að segja til um hvernig gosið á Fimmvörðuhálsi nú kemur til með að þróast.
Til baka







Senda inn efni



