Fagna kaupum Magma á hlut í HS Orku

Vilmundur Jósefsson er formaður SA.
Vilmundur Jósefsson er formaður SA. mbl.is/Ómar

Samtök atvinnulífsins fagna samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Með samkomulaginu hefur sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi.

Sérstaklega mun þetta gefa HS Orku tækifæri til að halda áfram á fullum krafti  uppbyggingu Reykjanesvirkjunar ásamt frekari rannsóknum á svæðinu, að því er segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins.

„Magma Energy hefur jafnframt lýst því yfir að starfsemin hér  á landi verði rekin með langtímahagsmuni allra hlutaðeigandi að leiðarljósi. Fjárfesting þessi er mikilvæg í ljósi mikils atvinnuleysis og hægagangs við stórar fjárfestingar að undanförnu. Með henni er vonast til að framkvæmdir til nýtingar orkunnar geti einnig öðlast byr undir báða vængi."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert