Endurskoðun vegna Suðurlandsskjálfta

Suðurlandsskjálftinn 29. maí 2008 var 6,3 á Richter. Skjálftinn árið …
Suðurlandsskjálftinn 29. maí 2008 var 6,3 á Richter. Skjálftinn árið 2000 mældist 6,6 á kvarðanum Kristinn Ingvarsson

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að ráðast í heildarendurskoðun á viðlaga- og tryggingakerfinu hvað viðkemur náttúruvá, trygginga- og tjónamálum. Samþykktin kemur í kjölfar skýrslu Ólafar Arnar Haraldssonar um reynslu þjónustumiðstöðvar sem sett var á fót eftir Suðurlandsskjálftann árið 2008.

Farið var yfir skýrsluna á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að niðurstöður hennar væru á þá leið, að meiriháttar breytingar þurfi að gera á viðlaga- og tryggingakerfi þannig að tjónþolar af náttúruhamförum fái bætur samkvæmt ákveðnum verklagsreglum. Komið hafi fram á undanförnum árum ýmis tjón sem falli ekki undir kerfið og lendi því á ríkissjóði. Nefndi hún sem dæmi sólpalla, frárennsli frá húsum og lagnir en einnig verðmæti í bílskúrum, bíla og fellhýsi.

Jóhanna segir að ráðist verði í endurskoðunina fljótlega og tillögur gerðar um breytingar á lögum og reglugerðum þar af lútandi.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert