Varnargarðar styrktir

Vinna er hafin við að styrkja varnargarðana við Þorvaldseyri eftir að aurflóð kom niður Svaðbælisá í morgun og fór yfir varnargarðarna.  Flóðið stóð fram eftir morgni en hafði sjatnað mjög upp úr hádegi.   Sjónarvottar sögðu flóðið hafa verið líkast fljótandi steypu. 

Flóðið er til komið  vegna yfirborðsösku  úr hlíðum Eyjafjallajökuls.  Á ratsjármyndum  sem flugvél Landhelgisgæslunnar TF- Sif  tók á flugi yfir jökulinn  í morgun sjást greinilega brotlínur á upptakastöðum flóðanna í allt að 1200 metra hæð.  Svæðið sem flóðið  kom frá er um 4-5 ferkílómetrar.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir, að aska þurfi að innihalda um 20%-30% vatn til  að aurflóð geti myndast en mikil rigning hefur verið á þessu svæði síðustu stundirnar.   Hliðstæðir atburðir geta átt sér stað á öðrum vatnasvæðum jökulsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert