Árekstur í Kömbunum

mbl.is

Árekstur var í Kömbunum á sjötta tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Selfossi muni tveir fólksbílar hafa rekist saman, en ekki er að svo stöddu vitað um tildrög slyssins né heldur hvort fólk hafi meiðst. 

Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi fyrr í dag. Um eitt leytið missti ung stúlka stjórn á bíl sínum í lausamöl í Miðdal og fór bílveltu. Stúlkuna sakaði ekki.

Klukkustund síðar missti ökumaður lítillar vinnuvélar stjórn ávélinni á Gjábakkavegi og fór bílveltu. Að sögn lögreglunnar slasaðist ökumaðurinn talsvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík. Talið er að rekja megi slysið til vegaframkvæmda á svæðinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert