Íslendingar „geta ekki borgað Icesave"

Heimasíða Icesave
Heimasíða Icesave DYLAN MARTINEZ

Fyrrverandi framkvæmdastjóri eins stærsta banka Hollands, sem spáði fyrir um hrun Landsbankans, telur ekki að Ísland geti staðið undir því að borga til baka Icesave skuldina við hollenska ríkið. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarps. 

Ísland getur ekki staðið undir því að borga til baka Icesave skuldina við hollenska ríkið, að mati fyrrverandi framkvæmdastjóra eins stærsta banka Hollands, sem spáði fyrir um hrunLandsbankans. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarps.

Bert Heemskert, fyrrverandi framkvæmdastjóri hins hollenska Rabobanka, var að sögn Rúv spurður að því fyrir skömmu á hollensku sjónvarpsstöðinni RTL hvort hann teldi að Hollendingar fengju aftur það fé sem hollenska ríkið hefði lánað Íslendingum vegna Icesave. Heemskert svaraði því til að upphæðin væri of há fyrir jafn lítið hagkerfi og á Íslandi. Mjög erfitt verði fyrir Íslendinga að geta staðið fullkomlega skil af afborgunum og borgað 100% af skuldinni innan viðráðanlegs tíma.

,,Sjáðu til og ef við tölum um 100 ár gætu þeir það en við vitum líka, að jafnvel með 1-2% vöxtum væri að greiða núverandi skuld á 100 árum svipað og að borga 10%  til baka eða eitthvað álíka," hefur Rúv eftir Heemskert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert