Frumvarp til vatnalaga úr nefnd

Skúli Helgason
Skúli Helgason mbl.is/Ómar

Frumvarp iðnaðarráðherra um afnám vatnalaga var afgreitt úr iðnaðarnefnd Alþingis í morgun.  Í frumvarpinu er lagt til að vatnalögin verði felld úr gildi en miklar deilur urðu um efni þess á þingi árið 2006 einkum þá breytingu á eignarréttarákvæði laganna að landeigendur skyldu öðlast eignarrétt á vatnsauðlindum í eignarlöndum þeirra. 

„Þar var vikið í grundvallaratriðum frá því fyrirkomulagi sem verið hafði í eldri vatnalögum nr. 15/1923 þar sem landeigendum var tryggður réttur til umráða og hagnýtingar á vatni en ekki eignarréttur," samkvæmt upplýsingum frá Skúla Helgasyni, formanni iðnaðarnefndar.  
 
Meirihluti iðnaðarnefndar samþykkti frumvarpið óbreytt með atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstri-hreyfingarinnar græns framboðs og Hreyfingarinnar (með fyrirvara) en fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks voru á móti.  Í áliti meirihluta nefndarinnar segir: 
 
„Nefndin tekur undir þau sjónarmið að með því að afnema gildistöku laganna sé verið að eyða þeirri réttaróvissu sem uppi hefur verið síðastliðin ár.  Með afnámi laganna sendir löggjafinn þau skýru skilaboð að ekki standi til að lögin nr. 20/2006 taki gildi heldur muni nýtt frumvarp til heildstæðra vatnalaga taka við af lögum nr. 15/1923,“ segir í tilkynningu frá formanni iðnaðarnefndar.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert