Íslendingar 436.500 árið 2060

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Hagstofa Íslands spáir því að mannfjöldi á Íslandi verði 436.500 þann 1. janúar 2060. Til samanburðar er mannfjöldi nú 317.600. Þetta kemur fram í nýútkomnum Hagtíðindum Hagstofunnar.

Þar er sú nýjung tekin upp í mannfjöldaspánni að gerð eru þrjú afbrigði af henni, svokölluð lágspá, miðspá og háspá. Afbrigðin miðast við ólíkar forsendur um fjölda barna á ævi hverrar konu og búferlaflutninga. Samkvæmt miðspánni verða Íslendingar sem fyrr segir 436.500, en í lágspánni verða íbúar 386.500 í lok spátímabilsins en 493.800 samkvæmt háspánni.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi fólksfækkun á yfirstandandi ári, en frá og með árinu 2011 mun fólki fjölga á landinu þrátt fyrir neikvæðan flutningsjöfnuð á því ári og hinu næsta.

„Í miðspá og háspá er gert ráð fyrir náttúrlegri fólksfjölgun út spátímabilið. Með náttúrlegri fólksfjölgun er átt við fleiri fædda en dána. Samkvæmt lágspánni verða dánir hins vegar fleiri en fæddir frá og með árinu 2052. Þá yrði fjölgun íbúa eingöngu rakin til jákvæðs flutningsjafnaðar,“ segir m.a. í frétt á vef Hagstofunnar.

Þar kemur einnig fram að samkvæmt spánni muni meðalævi halda áfram að lengjast bæði hjá körlum og konum. Karlar geta vænst þess að verða 79,7 ára nú en meðalævilengd þeirra verður 85 ár í lok spátímabilsins. Konur geta vænst þess að verða 83,3 ára en spáð er að sá aldur verði kominn í 87,1 ár í lok spátímabilsins.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert