Skuldastaða Árborgar erfið

Selfoss.
Selfoss. Ljósmynd/www.mats.is

„Þetta kallar á að við þurfum að taka fastar á rekstrinum," segir Eyþór Arnalds formaður bæjarráðs og oddviti meirihlutans í Sveitarfélaginu Árborg, en Árborg er meðal sveitarfélaga sem hafa fengið áminningarbréf frá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga vegna mikilla skulda og viðvarandi rekstrarhalla.

Bréf eftirlitsnefndarinnar var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Árborgar á fimmtudag, en þar kemur fram að hlutfall skulda Árborgar telja 207 prósent af árlegum heildartekjum. Þá eru gerðar athugasemdir við að framlegðarhlutfall sé lágt, en það er 4,4 prósent á síðasta ári, langt undir viðmiðum eftirlitsnefndarinnar upp á 15 til 20 prósent.

Í bréfinu er því beint til bæjaryfirvalda að senda inn greinargerð innan 30 daga um hvernig brugðist verði við þessari slæmu fjárhagsstöðu og að nefndinni þurfi að berast upplýsingar um endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir næstu þrjú árin. Eftir mánuð muni nefndin funda með bæjaryfirvöldum um framvindum mála.

Eyþór segist taka bréf eftirlitsnefndarinnar alvarlega.

„Þetta er ekki eins og að fá gula spjaldið í íþróttum og lofa að brjóta ekki af sér aftur. Í þessu tilviki þarf virkilega að bæta upp og sýna fram á betri vinnubrögð,“ segir Eyþór.

Allir leggist á eitt

Hann vonast til að allir bæjarfulltrúar og starfsmenn sveitarfélagsins leggist á eitt og vinni að því að hætta taprekstri.

„Þetta er það sem við töluðum um í minnihlutanum fyrir kosningar en fengum gagnrýni fyrir. Nú er komin staðfesting á þessu frá eftirlitsnefndinni," segir Eyþór.

Gert er ráð fyrir um 600 millljón króna tapi á rekstri sveitarfélagsins á þessu ári, þrátt fyrir litlar framkvæmdir. Eyþór segir að breytingar verði að gera tafarlaust á daglegum rekstri sveitarfélagins, sem ekki hafi skilað krónu í afborganir, vexti eða verðbætur.

„Við höfum raunar farið ágætlega af stað og vonumst til að spara amk. 50 milljónir króna strax á þessu ári með þeim breytingum sem við höfum gert á stjórnsýslunni frá því að nýr meirihluti tók við," segir Eyþór.

Við fengum umboð kjósenda til að ráðast gegn vandanum og það er það sem við hyggjumst gera, vonandi með góðu samstarfi allra. Það er allt undir," segir Eyþór.

Eyþór Arnalds segir skuldastöðu Árborgar erfiða.
Eyþór Arnalds segir skuldastöðu Árborgar erfiða.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert