Æstir og látnir sofa úr sér

Akureyri.
Akureyri. mbl.is/GSH

Þrír karlar gista nú fangageymslur á Akureyri eftir að þeir viðhöfðu ógnandi tilburði við gesti öldurhúsa bæjarins. Mennirnir reyndu að snapa slagsmál en lögreglan á Akureyri greip inn í áður en þeir urðu sér og öðrum til skaða.

Enginn mannanna meiddist alvarlega en lögreglan mat stöðuna svo að þeir væru ekki hæfir til að vera innan um annað fólk vegna ölvunar. 

Var því talið réttast að bjóða mönnunum að sofa úr sér í höfuðstöðvum lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert