Hækkar hratt í Gígju

Gígjukvísl í gær.
Gígjukvísl í gær. mbl.is/Sigurður

Rennsli í Gígjukvísl heldur áfram að aukast. Sjálvirkur vatnshæðarmælir Veðurstofunnar sýndi tæplega 3,8 metra nú á sjöunda tímanum en hann var í 1,8 metrum um miðjan dag í gær.

Brúin yfir Gígjukvísl er um 340 metra löng  en áin er núna yfir 200 metra breið við brúna. Vatnamælingamenn Veðurstofunnar mældu rennsli í ánni um miðjan dag í gær og reyndist það vera um 630 rúmmetrar á sekúndu. Rennslið var um 130 rúmmetrar um miðjan dag á sunnudag. Vex áin hraðar nú en í síðasta stóra hlaupi árið 2004.

Vatnamælingamenn hafa líka fylgst vel með Súlu í dag, en hugsanlegt er talið að hlaupið nái í hana. Engin breyting hefur heldur orðið á rennsli í Skeiðará, en vegna breytinga við Skeiðarárjökul rennur allt vatn sem kemur undan jöklinum vestur með jöklinum og í Gígju.

Vel er fylgst með skjálftamælum á Grímsfjalli. Þar varð skjálfti upp á 2,4 kl. 17 í gær en engin virkni hefur verið þar síðan. Jarðvísindamenn eiga allt eins von á að gos hefjist í kjölfar hlaupsins.  Ef hlaupið kemur eldgosi af stað nú, á sama tíma í ferlinu og fyrir sex árum, gæti það hafist síðdegis í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert