Lax-á fær Stóru-Laxá

Gunnar Örn Örlygsson glímir við lax í Brúarhyl í Stóru-Laxá.
Gunnar Örn Örlygsson glímir við lax í Brúarhyl í Stóru-Laxá. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Stjórn Veiðifélags Stóru-Laxár í Hreppum samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að ganga til samninga við Lax-á en ekki Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) sem hefur haft ána á leigu frá árinu 1961. Lax-á, sem er í eigu Árna Baldurssonar, bauð um 40% hærra verð fyrir ána, að sögn formanns veiðifélagsins, Estherar Guðjónsdóttur.

Segir hún að yfirgnæfandi meirihluti fundarmanna hafi viljað ganga til samninga við Lax-á þar sem tilboð félagsins var mun hærra  en tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Tilboðið er um leigu á ánni í sex ár en að sögn Estherar á eftir að ganga frá samningi við Lax-á.

Greitt fyrir upptöku neta í Ölfusá og Hvítá

Veiðisvæði Stóru-Laxár eru fjögur talsins en í samstarfi við Veiðifélag Stóru-Laxár og Veiðimálastofnun gerði Stangaveiðifélag Reykjavíkur  breytingar á veiðitíma árið 2009. Til að mynda var veiðitímabilið stytt og veiða/sleppa regla afnumin og settur á veiðikvóti í staðinn. Þessar breytingar eru gerðar að gefnu áliti Veiðimálastofnunar um aukna friðun á veiðisvæði Stóru-Laxár, að því er fram kemur á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur.

Undanfarin ár hefur SVFR sett töluvert fé í að greiða eigendum netaveiðileyfa í Hvítá og Ölfusá fyrir að leggja ekki net sín í árnar og hefur þetta skilað aukinni veiði í ám í uppsveitum Árnessýslu. Síðasta sumar var það gjöfulasta í Stóru-Laxá frá upphafi mælinga.

Esther segir að félagið eigi eftir að ræða við eigendur Lax-ár um hvort fyrirtækið muni taka þátt í slíku starfi. Á vef Lax-ár frá árinu 2008 kemur fram að Lax-á hefur ávallt verið reiðubúið að borga í netauppkaupunum að því tilskyldu að fá afrit í bókhald af netauppkaupasamningunum, skrifar Árni Baldursson á vef Lax-ár.

Skammt er stórra högga á milli hjá SVFR þar sem nýverið var greint frá því að félagið væri búið að missa veiðisvæði Syðri-Brúar í Soginu.

Nýverið var stjórn SVFR tilkynnt að samningur við SVFR yrði ekki endurnýjaður þar sem hærra tilboð hefði borist í veiðiréttinn. Ekki fæst uppgefið hver nýr leigutaki er, samkvæmt frétt á vef SVFR.

Frá Stóru-Laxá
Frá Stóru-Laxá mbl.is/Einar Falur Ingólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert