Fara ekki í ósinn fyrr en eftir mat Skipulagsstofnunar

Við Markarfljótsbrú.
Við Markarfljótsbrú. mbl.is/Ómar

Rangárþing eystra mun ekki gefa út framkvæmdaleyfi fyrir gerð varnargarðs til bráðabirgða í ósi Markarfljóts fyrr en samkomulag hefur tekist við landeigendur beggja vegna fljótsins og Skipulagsstofnun hefur metið það hvort framkvæmdin þurfi að fara í umhverfismat.

Siglingastofnun hefst ekki handa fyrr en öll leyfi hafa fengist. Hún hefur fengið heimild samgönguráðherra til að ráðstafa 180 milljónum kr. sem ætlaðar eru til viðhaldsdýpkunar í Landeyjahöfn. Meðal annars er fyrirhugað að gera flóðvarnargarð til að færa ósa Markarfljóts um tvo kílómetra til austurs.

Siglingastofnun sótti um framkvæmdaleyfi til Rangárþings eystra í fyrradag. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri hefur boðað til fundar með landeigendum og viðkomandi stofnunum næstkomandi mánudag til að skýra málið. Landeigendur austan Markarfljóts hafa áhyggjur af því að fljótið flæmist yfir þeirra land. Siglingastofnun segir að áin verði innan núverandi marka og garðurinn muni ekki veita henni á gróið land.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert