36,77% kosningaþátttaka

Notast er við talninavélar sem fluttar voru inn til landsins.
Notast er við talninavélar sem fluttar voru inn til landsins.

Kosningaþátttaka í kosningunum til stjórnlagaþings var 36,77%. Ástráður Haraldsson, formaður landskjörstjórnar, segir orðið ljóst að ekki verði hægt að ljúka talningu fyrr en á morgun.

36,77% kosningaþátttaka þýðir að rúmlega 85 þúsund manns kusu í kosningunum. Þetta er minnsta kosningaþátttaka í almennum kosningum hér í áratugi. Kosningaþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin í fyrravetur var um 60%.

Ástráður sagði að vegna minni kosningaþátttöku hefðu menn velt fyrir sér hvort hægt yrði að ljúka talningu í dag og birta tölur í kvöld, en nú sé ljóst að það muni ekki takast. Hann segir að engin vandamál hafi komið upp við talninguna, en hún sé tímafrek.

Ástráður sagði að ákveðið hefði verið að gera hlé á talningunni í kvöld og vinna ekki í nótt. Talningu yrði síðan haldið áfram í fyrramálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert