Húsaleigukostnaður vegna eldgoss styrktur

Mikið sprengigos var í Eyjafjallajökli.
Mikið sprengigos var í Eyjafjallajökli. Ragnar Axelsson

Styrkur upp á rúma milljón króna hefur verið greiddur til sveitarfélaga vegna útgjalda þeirra af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli. Er þar um að ræða húsaleigukostnað en íbúum á öskusvæðum hefur gefist kostur á að búa tímabundið í leiguhúsnæði fjarri heimili sínum. Þetta kemur fram í svari forsætisráðherra.

Einnig segir í svarinu að húsaleigukostnaður vegna tímabundins flutnings ábúenda sé styrktur, en frekari ákvarðanir um styrkveitingu eða endurgreiðslu hafa ekki verið teknar af ríkisstjórninni. Þó kunni sveitarfélög að eiga rétt til einhverra endurgreiðslna eða bóta á grundvelli laga um Viðlagatryggingu Íslands og laga um Bjargráðasjóð.

Arndís Soffía Sigurðardóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, spurði forsætisráðherra út í endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna útgjalda af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli.

Í svari forsætisráðherra segir meðal annars að engin ákvörðun hafi verið tekin um það af hálfu ríkisstjórnarinnar að endurgreiða sveitarfélögunum útgjöld vegna eldgossins sem ekki er hægt að sjá fyrir núna en kunna að koma til síðar.

Hins vegar er tekið fram að  ríkisstjórnin hafi fram til þessa lagt til 800,7 milljónir króna til að mæta útgjöldum vegna viðbragða í kjölfar eldgossins á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Þá sé enn að störfum samráðshópur fimm ráðuneytisstjóra sem fjallar um viðbrögð, neyðaraðgerðir og kostnað í kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli og á Fimmvörðuhálsi. Mun hann halda áfram að vinna að verkefnum sínum í samvinnu við alla þá fjölmörgu aðila sem að málinu hafa komið, svo sem ráðuneytin, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og þjónustumiðstöðina á gossvæðinu, sveitarfélög, hagsmunaaðila og stofnanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert