Gæsluvarðhalds óskað

Árásarmenn á Selfossi fara væntanlega í gæsluvarðhald.
Árásarmenn á Selfossi fara væntanlega í gæsluvarðhald. mbl.is/Eggert

Lögreglan á Selfossi hefur óskað eftir fjögurra vikna gæsluvarðhaldi yfir þremur mönnum sem réðust inn í íbúð í bænum í gærkvöldi og höfðu þar í hótunum við íbúa og gesti. Þeir ógnuðu fólkinu með hnífum og höfðu á brott með sér tölvur og önnur verðmæti.

Árásarmennirnir og hafa í dag verið yfirheyrslum hjá lögreglu á Selfossi. taki dómari ósk um gæsluvarðhald til greina yrðu mennirnir í haldi til 10. janúar. „Eins og málsatvik og öll gögn líta út núna þá var þessi árás mjög ófyrirleitin. Því er rík ástæða til þess að óska gæsluvarðhalds bæði á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Selfossi í samtali við Mbl.is.

Lögreglan var kölluð á vettvang ránið í gærkvöldi en þá voru mennirnir á bak og burt. Var hafin mikil leit að og skömmu síðar sá lögreglan til bifreiðar sem tveir mannana voru í. Var hún stöðvuð en mennirnir stungu af á hlaupum en náðust fljótlega. Þriðji var handtekinn í bifreið við Rauðavatn í Reykjavík í fyrirsáti höfuðborgarlögreglu sem veitti liðsinni í málinu sem og sérsveit Ríkislögreglustjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert