Hverfandi birtist um miðja nótt

Það er tignarleg sjón að sjá fossinn steypast niður í …
Það er tignarleg sjón að sjá fossinn steypast niður í gljúfrið. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Hálslón, uppistöðulón Fjótsdalsstöðvar við Kárahnjúka, fylltist klukkan 1.45 í fyrrinótt.

Þar með fór lónið á yfirfall og hinn tilkomumikli foss Hverfandi birtist. Vatninu er veitt um yfirfall við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum og þaðan steypist það í 90-100 metra háum fossi niður í Hafrahvammagljúfur.

Það þýðir að Jökulsá á Dal neðan virkjunar verður vatnsmikil, straumhörð og gruggug, þar á meðal í Stuðlagili, sem er vinsæll áningarstaður ferðamanna. Ef að líkum lætur verður lónið á yfirfalli fram í október/nóvember.

Í fyrra fylltist Hálslón nokkru fyrr en að þessu sinni, í lok júlí.

Staðan verst í Þórisvatni

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur vatnsbúskapur Landsvirkjunar oft gengið betur en í sumar. Er Hálslón það fyrsta sem fyllist.

Á heimasíðu Landsvirkjunar má sjá að enn vantar 70 sentímetra upp á að Blöndulón fari á yfirfall. Í fyrra gerðist það 21. ágúst.

Verst er staðan í Þórisvatni, sem sér virkjunum á Þjórsársvæðinu fyrir vatnsforða. Í gær vantaði fimm metra upp á að lónið fylltist. Ljós er að þetta mikilvæga miðlunarlón mun ekki fyllast á þessu hausti frekar en nokkur undanfarin ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert