Hægviðri og léttskýjað í dag

Hiti verður á bilinu 3 til 10 stig.
Hiti verður á bilinu 3 til 10 stig. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Í dag verður hægviðri og léttskýjað, en skýjað með köflum á Suðurlandi og líkur á smá vætu af og til við ströndina.

Hiti verður á bilinu 3 til 10 stig, en sums staðar verður vægt frost í nótt.

Vaxandi norðan- og norðvestanátt verður á morgun og 8-15 m/s seinnipartinn. Rigning verður fyrir norðan og slydda eða jafnvel snjókoma með kvöldinu, en yfirleitt bjart veður syðra. Kólnar, einkum norðan til.

Á morgun mun kólna þegar norðanáttin nær sér á strik og er viðbúið að snjór eða krap verði á fjallvegum fyrir norðan og sums staðar á láglendi annað kvöld, að því er segir í athugasemd veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert