Ökumaðurinn sem lést í bílslysi við Fossá á Skaga í gær var lögreglumaður frá Hong Kong.
Eiginkona hans, sem var flutt slösuð á sjúkrahúsið á Akureyri, er einnig lögregluþjónn.
Þetta kemur fram í kínversku miðlunum South China Morning Post og The Standard.
Slysið átti sér stað á þriðja tímanum í gær. Tveir voru í bílnum sem valt og hafnaði utan vegar við Fossá á Skaga.
Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, segir í samtali við mbl.is að ekki sé tímabært að greina frá þjóðerni fólksins að svo stöddu.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom á vettvang í gær og er rannsókn slyssins á borði rannsóknardeildar lögreglustjórans á Norðurlandi vestra.