17 ára á 188 km hraða

Ökumaðurinn reyndi að stinga lögregluna af.
Ökumaðurinn reyndi að stinga lögregluna af. Ljósmynd/Colourbox

Lögreglumenn á Vesturlandi mættu bifreið sem ekið var á 145 km hraða þegar þeir voru við löggæslueftirlit í gærkvöldi á Vesturlandsvegi við Hafnarfjall.

Reyndi að stinga lögregluna af

Þeir veittu bifreiðinni strax eftirför með blá ljós tendruð en ökumaðurinn stöðvaði ekki för sína þrátt fyrir að honum væru gefin stöðvunarmerki. Þess í stað jók hann ferðina og reyndi að stinga lögregluna af, að því er segir í facebookfærslu lögreglunnar á Vesturlandi.

Ökumaðurinn mætti síðan öðrum lögreglubíll sem var einnig á ferð um Vesturlandsveg þar sem bifreiðinni er ekið á ofsahraða frá fyrri lögreglubifreiðinni. Hraðinn var þá mældur á 188 km/klst.

Sjúkrabifreið ræst út

Fjarskiptamiðstöð lögreglu var gert viðvart um eftirförina og sjúkrabifreið var ræst út frá Borgarnesi til öryggis.

Ökumaðurinn ók áfram Vesturlandsveg inn á Borgarfjarðarbraut. Eftirförinni lauk á Hvítárvallarvegi þar sem ökumaður stöðvaði bifreiðina og gafst upp. Hann var handtekinn á staðnum.

Há sekt og sviptur ökuréttindum

Ökumaðurinn og farþegar hans eru aðeins 17 og 18 ára og því var haft var samband við foreldra, auk þess sem barnavernd var gert viðvart.

Ökumaðurinn var fluttur á lögreglustöðina á Akranesi þar sem hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og á hann von á hárri sekt að auki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert