Evrópski þróunarbankinn (CEB) hefur samþykkt að veita Orkuveitunni 75 milljóna evra lán, 11 milljarða króna, til að byggja upp veitukerfi og efla viðnám þeirra gegn loftslagsvá og náttúruhamförum.
Mun fjármagnið nýtast til uppbyggingar rafveitna, hitaveitna og vatnsveitna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.
Fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu hefur kallað á uppbyggingu nýs húsnæðis sem tengist kerfum Veitna sem er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar.
Á sama tíma og veitukerfin eru stækkuð er unnið að öflun aukins forða fyrir hitaveituna og einnig þarf að fjárfesta í rafveitunni til að mæta orkuskiptum.
„Allar þurfa veiturnar einnig að eflast vegna afleiðinga loftslagsbreytinga á borð við hækkandi sjávarstöðu, aukna ákefð úrkomu og óvissar breytingar í veðurfari,“ segir í tilkynningunni.
Í tilkynningu bankans um lánveitinguna er vikið að því að veituþjónustan sé á hagstæðu verði og hafi því jöfnunaráhrif í samfélaginu, að er kemur fram í tilkynningunni.
„Orkuveitan er að vaxa og eflast. Veitur vinna eftir metnaðarfullum áætlunum um eflingu veitukerfanna, sem eru grunnstoð í sjálfbærni okkar samfélags. Það er gott að Orkuveitan nýtur trausts til fjölbreyttrar og hagstæðrar fjármögnunar á þessum nauðsynlegu verkefnum,“ er haft eftir Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Orkuveitunnar, sem heldur áfram:
„Nýleg dæmi uppbyggingu og eflingu veitukerfanna er lagning og tenging nýrrar Suðuræðar fyrir hitaveituna á sunnanverðu höfuðborgarsvæðinu og bygging nýrrar aðveitustöðvar rafveitu Veitna til að hægt sé meðal annars að hlaða skemmtiferðaskip í Sundahöfn.“