Spencer lávarður boðar komu sína

Spencer lávarður og Harry Bretaprins.
Spencer lávarður og Harry Bretaprins.

Fjöldi þekktra nafna hefur boðað komu sína á bókmenntahátíðina Iceland Noir sem haldin verður í nóvember. Nýjasta viðbótin er Spencer lávarður sem verður einn af heiðursgestum hátíðarinnar.

Flestir Íslendingar þekkja sjálfsagt Charles Spencer lávarð sem bróður Díönu prinsessu. Hann hefur þó látið til sín taka á ritvellinum; skrifað sagnfræðibækur og greinar í blöð og tímarit. Fyrr á árinu kom út sjálfsævisaga hans sem byggist á vist hans í heimavistarskóla á barnsaldri. Bókin kallast A Very Private School og hefur vakið mikla athygli. Í henni segir Spencer frá miklu harðræði og kynferðislegu ofbeldi sem hann var þar beittur. Hefur hann greint frá því að það hafi verið mikil raun fyrir sig að rifja upp þennan tíma við skrif bókarinnar.

„Þetta er frábær bók. Alveg sláandi lesning,“ segir Ragnar Jónasson, rithöfundur og einn skipuleggjenda Iceland Noir. Ragnar segir að fengur sé að komu Spencers lávarðar hingað. Hann sé merkur maður sem hafi frá mörgu að segja. Með í för verður Cat Jarman og mun hún sjá um að spyrja lávarðinn spjörunum úr um bókina og efni hennar. Þau tvö halda úti vinsælu hlaðvarpi við þriðja mann, The Rabbit Hole Detectives, en eru auk þess par eftir því sem komið hefur fram í breskum fjölmiðlum. „Hún er sjálf mikill sérfræðingur um víkinga. Við fáum kannski tækifæri til að spyrja hana út í það,“ segir Ragnar.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert