Guðmundur kom ekki til greina sem forsætisráðherra

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra kynnti endurnýjað samstarf ríkisstjórnarinnar í apríl.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra kynnti endurnýjað samstarf ríkisstjórnarinnar í apríl. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í stjórnarmyndunarviðræðum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna (VG) í vor eftir að Katrín Jakobsdóttir fór í forsetaframboð kom aldrei til greina að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, starfandi formaður VG, yrði forsætisráðherra.

Frá þessu greindi Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í Spursmálum á föstudag.

Stjórnarmyndunarviðræður enduðu þannig að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók við embætti forsætisráðherra.

Sigurður kom til greina sem forsætisráðherra

Sigurður segir að einnig hafi komið til greina að hann myndi taka forystu í ríkisstjórninni.

„Til að mynda að ég hefði getað leitt ríkisstjórnina, sem dæmi. Við ræddum það,“ segir Sigurður aðspurður.

Kom til greina að Guðmundur Ingi gerði það?

„Nei það kom nú ekki til greina. Ekki að okkar mati,“ svaraði Sigurður.

Fullkomið ábyrgðarleysi að halda samstarfinu ekki áfram

Guðmundur Ingi hefur ákveðið að gefa ekki kost í sér í formann Vinstri grænna á landsfundi flokksins næstu helgi. Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur tilkynnt um formannsframboð og enginn hefur tilkynnt um mótframboð.

„Ég myndi bara segja að alla jafna eru kjör­tíma­bil fjög­ur ár og við sögðum bara að við ætl­um að klára hér fullt af verk­efn­um sem við vor­um þá ekki búin að. Við náðum reynd­ar mikl­um ár­angri síðastliðið vor í gegn­um þingið. Engu að síður eru verk­efni enn sem við erum að vinna að og ég vil bara segja að eins og staðan er núna væri full­komið ábyrgðarleysi ef rík­is­stjórn­in héldi ekki áfram við þær aðstæður sem uppi eru,“ sagði Sig­urður Ingi.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert