Karlmaður var handtekinn eftir líkamsárás með hníf. Áverkar voru minniháttar. Maðurinn var vistaður í fangaklefa sökum rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 1 fór í útkallið en hún sinnir verkefnum í Austurbæ, Vesturbæ, miðbæ Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi.
Tveir voru handteknir á stolnum bíl og er ökumaðurinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Tilkynnt var um þjófnað úr verslun. Maður var talinn hafa farið út með tvær flíkur. Málið er enn í skoðun og verður kært þegar og ef gögn liggja fyrir, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. 34 mál eru skráð í kerfi lögreglunnar á tímabilinu, þar af níu þar sem fólk verður kært og mál þeirra fara í rannsókn.
Tilkynning barst um einstakling sem var til ama í verslunarhúsnæði. Hann sást aka á brott og vissu lögreglumenn að hann væri án ökuréttinda. Hann reyndi að komast undan hlaupandi en lögreglan sá við honum. Viðkomandi verður kærður fyrir að aka ítrekað sviptur ökuréttindum og að sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum í vesturborginni. Annar var án gildra ökuréttinda og hinn að tala í símann.
Tilkynnt var um umferðaróhapp. Annar ökumannanna stakk af frá vettvangi. Engin meiðsli urðu á fólki.
Einnig var tilkynnt um innbrot í skóla og er málið í rannsókn.
Í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar í verslun.
Í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti voru afskipti höfð af ölvuðum ungmennum. Ein stúlka var kærð fyrir ofbeldi gegn lögreglunni.