Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á níunda tímanum nú í kvöld vegna eldsvoða í bifreið á Vesturlandsvegi við Brúarfljót í Mosfellsbæ.
Einn slökkviliðsbíll frá starfsstöð slökkviliðsins í Mosfellsbæ var sendur á vettvang og hefur nú eldurinn verið slökktur.
Jón Kristinn Valsson, aðstoðarvarðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að engin slys hafi orðið á fólki og að upptök eldsins séu ókunn.