Vinstri grænir halda upp á 5 ára afmæli

Vinstrihreyfingin – grænt framboð var stofnuð 6. febrúar 1999 og því fagna Vinstri grænir fimm ára afmæli sínu næstkomandi föstudag. Verður skipulagt afmælishald á nokkrum stöðum á landinu af því tilefni, í Reykjavík, á Akureyri, Sauðárkróki og Selfossi. Afmælisveisla verður haldin á Café Amour á Akureyri á föstudagskvöld og þar ávarpar Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, m.a. gesti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert