Um 100 þátttakendur í hópi sem skiptist á efni á netinu

Um 100 þátttakendur voru í lokuðum hópi sem skiptist á efni á netinu og aðgerðir lögreglu beindust að í gær. Embætti ríkislögreglustjóra segir, þeir sem í hópnum voru hafi í mismiklum mæli veitt öðrum í hópnum beinan aðgang að höfundarréttarvörðu efni, gegn því að fá aðgang að efni hinna á sama hátt. Stærsti þátttakandinn hafði upp á að bjóða rúm 2,5 terabæti af efni, sem er 2500 gígabæti, og jafngildir því geymsluplássi sem finna má í 15 til 20 venjulegum heimilistölvum.

Lögreglan gerði í gærkvöldi húsleitir hjá 12 einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu. Segir á heimasíðu ríkislögreglustjóra, að samtals hafi þeir einstaklingar, sem lögregla hafði afskipti af í gær, deilt með sér rúmum 11 terabætum af efni sem lögregla hefur lagt hald á. Hópurinn allur hafi deilt með sér efni sem láti nærri að hafa verið nálægt 100 terabæti alls.

Lögreglan segir, að húsleitirnar hafi verið gerðar hjá stjórnendum og stórum þátttakendum í hópi sem skipst hafi á efni á netinu. Skipti þessi hafi verið gerð með því að nota forritið DC++ en það sé skráaskiptaforrit sem geri þeim sem það noti mögulegt að deila milli sín, eða opna sameiginlegan aðgang að, efni sem vistað er á tölvum hvers og eins meðlims.

Hópurinn hafði, með því að nota framangreindan hugbúnað, aðgang yfir netið að geymsluplássi á tölvum allra annarra í hópnum og því gat hver meðlimur sótt þangað allt það efni sem hann lysti með því að tengjast inn á tölvu viðkomandi beint. Lögreglan segir, að sakborningarnir hafi notað hugbúnaðinn til að halda úti lokuðu kerfi á netinu þar sem þeir deildu mörgum þúsundum af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, tónlistardiskum, forritum og tölvuleikjum.

Þeir einstaklingar sem leitir voru gerðar hjá voru yfirheyrðir í gærkvöldi og hald lagt á allan tölvubúnað þeirra vegna sönnunargildis hans og með það fyrir augum að krefjast upptöku á honum í væntanlegum refsimálum á hendur þeim. Tveir hinna grunuðu gistu fangageymslur í nótt vegna rannsóknar málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert