Dó við að þvo sér í gosbrunni

34 ára gamall maður dó vegna raflosts er hann þvoði hendur sínar í gosbrunni á torgi í Sofiu, höfuðborg Búlgaríu, að því er lögregla greindi frá í dag.

„Samkvæmt niðurstöðum lögreglurannsóknar dó hann líklega vegna rafstraums í vatninu sem varð vegna bilunar í rafdrifnu vatnskerfi gosbrunnsins,“ sagði Nikolay Nikolov, talsmaður lögreglunnar.

„Vitni að slysinu segja að maðurinn hafi misst meðvitund um leið og hann dýfði höndunum í vatnið,“ bætti hann við. Gosbrunnurinn er á Slaveykov torgi í einu fjölfarnasta hverfi borgarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson