Sleginn með hafnarboltakylfu

Maður var sleginn með hafnarboltakylfu utan við veitingastað á Flateyri um klukkan hálf fjögur í nótt. Meiðsl hans voru ekki talin alvarleg og þurfti hann ekki að fara á sjúkrahús, að sögn lögreglunnar á Ísafirði. Enginn var handtekinn vegna málsins en hald var lagt á hafnarboltakylfuna. Mikill erill var hjá lögreglunni, mikið að fólki að skemmta sér í bænum. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert