Selurinn reyndist hafa fengið sér hádegisblund

Lögreglan á Selfossi fékk í gær tilkynningu um ósjálfbjarga sel í fjörunni við veitingastaðinn Hafið bláa vestan Ölfusáróss. Lögreglan segir, að í ljós hafi komið að ekkert amaði að selnum. Hann hafi einungis fengið sér hádegisblund sem lögreglumenn vöktu hann af. Selurinn renndi sér í sjóinn þegar hann vaknaði og stormaði til hafs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert