Þriggja bíla árekstur og umferðarteppa í Reykjavík

Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi í dag og má rekja hann til umferðarteppu sem skapaðist í kjölfar lokunar Miklubrautar til austurs frá Grensásvegi. Miklabraut var opnuð að nýju fyrir stundu og hafði hún þá verið lokuð í þrjá og hálfan klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík skapaði lokunin heljarinnar umferðarteppu í austurhluta borgarinnar.

Miklubraut var lokað upp úr klukkan ellefu í morgun eftir að vörubíll með glerfarm fór á hliðina og glerbrot úr honum dreifðust um stórt svæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert