Verð á farsímaþjónustu hækkar á Íslandi á meðan það lækkar á Norðurlöndunum

Viðbrögð Póst- og fjarskiptastofnunar eru m.a. þau að leggja aðgangskvöð …
Viðbrögð Póst- og fjarskiptastofnunar eru m.a. þau að leggja aðgangskvöð á Símann til að auðvelda nýjum þjónustuaðilum leið inn á markaðinn hérlendis. Reuters

Íslenski farsímamarkaðurinn einkennist af fákeppni þar sem tvö fjarskiptafyrirtæki skipta markaðnum á milli sín og hefur Síminn 65% markaðshlutdeild og OgVodafone 35% markaðshlutdeild. Þetta eru niðurstöður vinnuhóps sem Póst- og fjarskiptastofnun auk systurstofnana hennar á Norðurlöndum komust að, en hópnum var gert að bera saman farsímamarkaðinn á Norðurlöndum.

Bent er á að verð til neytenda hafi hækkað hérlendis frá árinu 2002 á meðan það hefur lækkað í hinum Norðurlöndum.

Á sama tíma hefur notkun farsímaþjónustu, mæld í fjölda mínúta á viðskiptavin, hérlendis staðið í stað á meðan hún hefur heldur aukist í hinum Norðurlöndunum.

Þessi staða er áhyggjuefni að mati Póst- og fjarskiptastofnunar. Viðbrögð stofnunarinnar eru þau helst að hlutast til um lækkun og jöfnun lúkningarverðs farsímafyrirtækjanna og leggja aðgangskvöð á Símann til að auðvelda nýjum þjónustuaðilum leið inn á markaðinn.

Þessar aðgerðir birtast í niðurstöðu markaðsgreininga fyrir farsímamarkaðina, sem nú liggja fyrir.

Fram kemur í tilkynningu frá Póst- og fjarskiptastofnun að megin markmið verkefnisins hafi verið að kanna áhrif reglugerða á markaðsþróun og samkeppni í þeim tilgangi að meta reynsluna og árangur eftir löndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert