Hraðakstur á Bústaðavegi

Brot 289 ökumanna voru mynduð á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallavegar fyrir helgina. Að sögn lögreglu var meðalhraði hinna brotlegu, sem óku Bústaðaveg í vesturátt, tæpir 77 km/klst en leyfður hámarkshraði á þessum kafla er 60.

Sjötíu og einu ökutæki var ekið á meira en 80 km hraða og sex ökutækjum var ekið hraðar en 90. Eitt ökutæki var mælt á 122 km hraða.

Á sama tímabili óku tólf ökumenn gegn rauðu ljósi á þessum gatnamótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert