Kaupás innkallar barnamat

Kaupás hf. sem flytur inn Organic Baby barnamat, framleiddan af UNFI í Bandaríkjunum, hefur innkallað Organic Baby, Plum Bananas Oats barnamat með best fyrir dagsetningu 02-2009, lotunúmer 0396X2413 sem seldur hefur verið í verslunum Nóatúns og Krónunnar. Um er að ræða barnamat í glerkrukkum.

Ástæða innköllunarinnar er að í einni krukku af Organic Bacby Plum Bananas Oats með ofangreindu lotunúmeri hefur fundist aðskotahlutur úr annari krukku og segist Kaupás vilja fyrirbyggja möguleika á skaða sem gæti hlotist af því ef aðskotahlutir leyndust í fleiri krukkum af viðkomandi tegund. Vara úr sömu framleiðslulotu hefur þegar verið fjarlægð úr hillum verslana. Dagsetningu og lotunúmer umræddrar framleiðslu má finna á loki krukkunnar.

Óskað er eftir því að neytendur sem kunna að eiga viðkomandi vöru skili vörunni til Kaupáss eða láti fyrirtækið vita símleiðis þannig að hægt sé að nálgast vöruna hjá viðkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert