Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 12% í apríl

Hótel Valhöll á Þingvöllum.
Hótel Valhöll á Þingvöllum.

Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 89.900 en voru 80.100 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 9800 nætur eða rúm 12%. Að sögn Hagstofunnar, sem tók tölurnar saman, fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum. Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði gistinóttum um 17% milli ára.

Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um rúmlega helming, fóru úr 4600 í 6900 milli ára (51% aukning). Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 43%, úr 2100 í 3100. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fór gistináttafjöldinn úr 6100 í 7400 milli ára, sem er 20% aukning.

Gistinæturnar á höfuðborgarsvæðinu í apríl síðastliðnum voru 63.100 en voru 58.200 í sama mánuði árið 2006 sem er aukning um rúm 8%. Á Suðurlandi nam aukning gistinátta rúmum 5% en þær fóru úr 9000 í 9500 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í apríl má bæði rekja til útlendinga (13%) og Íslendinga (11%).

Gistirými á hótelum í aprílmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3710 í 4125, sem er 11% aukning og fjöldi rúma úr 7501 í 8348, 11% aukning. Hótel sem opin voru í apríl síðastliðnum voru 73 en 74 í sama mánuði árið 2006.

Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars og apríl samanlögðum voru 293.200 en voru 250.000 fyrir sama tímabil árið 2006, sem er 17% aukning milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um tæp 73%, úr 5500 í 9500.

Aukningin nam 24% á Norðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 15% á Suðurlandi og 6% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 22% og Íslendinga um 8%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert