„Búinn að fá nóg af vatni"

Tryggvi Jóhannsson vann í gærkvöld við að taka parket af …
Tryggvi Jóhannsson vann í gærkvöld við að taka parket af gólfum. mbl.is/Skapti

Páll Gíslason, íþróttakennari og knattspyrnuþjálfari, brosti í gærkvöldi eftir að strákarnir hans í 3. flokki Þórs sigruðu Tindastól frá Sauðárkróki, 3:1, í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ á Norður- og Austurlandi. Leikurinn fór fram á Akureyri í töluverðum vindi, og lengstum rigndi eins og hellt væri úr fötu. Páli var sama um rigninguna en dagurinn var þó ögn vætusamari en hann kærði sig um. Fyrr um daginn sprakk heitavatnsrör á heimili hans og ljóst er að allt parket, hurðir og fleira í íbúðinni er ónýtt og að tjónið hleypur á milljónum. Í gærmorgun urðu vatnsskemmdir á fleiri íbúðum í Glerárhverfi af sömu ástæðu. "Ég er eiginlega búinn að fá alveg nóg af vatni í bili. Það er eins gott að ég á ekki að kenna sund í fyrramálið..." sagði Páll í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.

Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert