Varmá í Ölfusi flæddi yfir bakka sína

Varmá í Ölfusi flæddi yfir bakka sína í gærkvöld og var slökkvilið Selfoss kallað til því áin hafði flætt ofan í kjallara hótels sem Eldhestar reka í grennd við Hveragerði. Að sögn lögreglunnar á Selfossi kom útkallið um miðnætti en ekki er vitað að svo stöddu um umfang skemmdanna. Það er ekki algengt að Varmá í Ölfusi flæði yfir bakka sína en talið er að miklar rigningar undanfarið eigi sökina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert