Atvinnulífið kallar eftir sterkri ríkisstjórn

Vilhjálmur Egilsson.
Vilhjálmur Egilsson. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er verulegt áhyggjuefni að landið skuli vera ríkisstjórnarlaust," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Atvinnulífið kalli eftir sterkri ríkisstjórn sem geti búið því starfsskilyrði sem hægt sé að vinna við. Brýnt sé að greiða  úr þeim bráðavanda sem við sé að glíma og síðan að byggja upp til lengri tíma.

Vilhjálmur segir að brýnustu viðfangsefnin felist í lækkun vaxta, afnámi gjaldeyrishafta, nauðsyn á starfhæfum bönkum og ýmsum aðgerðum til að draga úr atvinnuleysi.

„Það þarf að koma strax ný ríkisstjórn sem er með ákveðna og skynsama stefnu í þessum. málum," segir Vilhjálmur Egilsson. Hann segir að SA hafi undanfarið átt viðræður við stjórnvöld um þessi mál og fyrir helgi hafi SA sett fram atvinnustefnu um hvernig samtökin telja að atvinnulífið muni þróast í bráð og lengd.

Fundir eru haldnir víða um land þessa dagana til að kynna þessa stefnu. Yfirskrift atvinnustefnu SA er hagsýn, framsýn og áræðin. Hún er innlegg í umræðu um hvernig hægt er að snúa vörn í sókn. Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu, segir á heimasíðu SA.

mbl.is