Stefnir á 3. sætið hjá Samfylkingunni í NA-kjördæmi

Ragnar Thorarensen
Ragnar Thorarensen

Ragnar Thorarensen gefur kost á sér í 3. sætið hjá Samfylkingunni í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Ragnar er fæddur og uppalinn á Siglufirði. Ragnar er landfræðingur að mennt og stundar nú meistaranám í viðskiptum og stjórnun (MBA)við Háskóla Íslands.

Ragnar hefur unnið við ýmiss störf til sjós og lands en síðustu ár hefur hann starfað á fasteignasölumarkaðnum. Ragnar er kvæntur og á þrjú börn. Hans helstu baráttumál lúta að því að styrkja rekstrargrunn sveitarfélaganna í Norðausturkjördæmi og bæta atvinnu- og búsetuskilyrði íbúanna, að því er segir í tilkynningu.


mbl.is