[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Fagribær, 110 Reykjavík Fagribær Reykjavík
Kjarrmóar, 210 Garðabær Kjarrmóar Garðabær
Þingvallavatn-lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Þingvallavatn-lóð Selfoss (dreifbýli)
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Eikardalur, 260 Njarðvík Eikardalur Njarðvík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Borgarahreyfingin fagnaði sigri í nótt. Flokkurinn fékk 4 menn kjörna á þing.

Borgarahreyfingin fagnaði sigri í nótt. Flokkurinn fékk 4 menn kjörna á þing. mbl.is/Kristinn

Innlent | mbl.is | 26.4.2009 | 10:45

Nýtt Alþingi Íslendinga

Bloggað um fréttina

Tuttugu og sjö nýir þingmenn setjast á Alþingi eftir alþingiskosningarnar í gær. Þetta varð ljóst þegar síðustu tölur bárust loks úr NA-kjördæmi á níunda tímanum í morgun. Af 63 þingmönnum eru 26 konur eða 43%. Átta þingmenn, sem sóttust eftir endurkjöri og voru ofarlega á framboðslistum, náðu ekki endurkjöri.

Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkurinn eftir kosningarnar, fékk 29,8% atkvæða og 20 þingmenn, bætti við sig 2.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk 23,7% atkvæða og 16 þingmenn, tapaði 9 og hefur fylgi flokksins aldrei verið jafn lítið.

Vinstri hreyfingin grænt framboð fékk 21,7% atkvæða og 14 þingmenn, bætti við sig fimm.

Framsóknarflokkurinn fékk 14,8% atkvæða og 9 þingmenn, bætti við sig 3.

Þá varð til nýr þingflokkur, Borgarahreyfingin, sem fékk 7,2% atkvæða og 4 þingmenn.

Frjálslyndi flokkurinn fékk 2,2% og engan mann en fékk 4 þingmenn kjörna árið 2007.

Þá fékk Lýðræðishreyfingin 0,6% atkvæða.

Margir skiluðu auðu: 6.226 eða 3,2% allra sem komu á kjörstað.

 

 

Þingmenn Reykjavíkurkjördæmis norður:

Kjördæmakjörnir

  1. Jóhanna Sigurðardóttir (S)
  2. Katrín Jakobsdóttir (V)
  3. Illugi Gunnarsson (D)
  4. Helgi Hjörvar (S)
  5. Árni Þór Sigurðsson (V)
  6. Valgerður Bjarnadóttir (S)
  7. Pétur H. Blöndal (D)
  8. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B)
  9. Þráinn Bertelsson (O)

Uppbótarþingmenn

  • Álfheiður Ingadóttir (V)
  • Steinunn Valdís Óskarsdóttir (S)

Þingmenn Reykjavíkurkjördæmis suður:

Kjördæmakjörnir

  1. Össur Skarphéðinsson (S)
  2. Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
  3. Svandís Svavarsdóttir (V)
  4. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S)
  5. Ólöf Nordal (D)
  6. Lilja Mósesdóttir (V)
  7. Skúli Helgason (S)
  8. Vigdís Hauksdóttir (B)
  9. Birgitta Jónsdóttir (O)

Uppbótarþingmenn

  • Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir (S)
  • Birgir Ármannsson (D)

 

Þingmenn Suðvesturkjördæmis:

Kjördæmakjörnir

  1. Árni Páll Árnason (S)
  2. Bjarni Benediktsson (D)
  3. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (V)
  4. Katrín Júlíusdóttir (S)
  5. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (D)
  6. Siv Friðleifsdóttir (B)
  7. Þórunn Sveinbjarnardóttir (S)
  8. Ragnheiður Ríkharðsdóttir (D)
  9. Þór Saari (O)
  10. Ögmundur Jónasson (V)

Uppbótarþingmenn

  • Magnús Orri Schram (S)
  • Jón Gunnarsson (D)

 

Þingmenn Norðvesturkjördæmis:

Kjördæmakjörnir

  1. Ásbjörn Óttarsson (D)
  2. Jón Bjarnason (V)
  3. Guðbjartur Hannesson (S)
  4. Gunnar Bragi Sveinsson (B)
  5. Einar K. Guðfinnsson (D)
  6. Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)
  7. Ólína Þorvarðardóttir (S)
  8. Guðmundur Steingrímsson (B)

Uppbótarþingmaður

  • Ásmundur Einar Daðason (V)

Þingmenn Norðausturkjördæmis:

Kjördæmakjörnir

  1. Steingrímur J. Sigfússon (V)
  2. Birkir Jón Jónsson (B)
  3. Kristján L. Möller (S)
  4. Kristján Þór Júlíusson (D)
  5. Þuríður Backman (V)
  6. Höskuldur Þór Þórhallsson (B)
  7. Sigmundur Ernir Rúnarsson (S)
  8. Björn Valur Gíslason (V)
  9. Tryggvi Þór Herbertsson (D)

Uppbótarþingmaður

  • Jónína Rós Guðmundsdóttir (S)

 

Þingmenn Suðurkjördæmis:

Kjördæmakjörnir

  1. Björgvin G. Sigurðsson (S)
  2. Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
  3. Sigurður Ingi Jóhannsson (B)
  4. Atli Gíslason (V)
  5. Oddný G. Harðardóttir (S)
  6. Árni Johnsen (D)
  7. Eygló Þóra Harðardóttir (B)
  8. Róbert Marshall (S)
  9. Unnur Brá Konráðsdóttir (D)

Uppbótarþingmaður

  • Margrét Tryggvadóttir (O)

 

Útstrikanir meiri en áður hafa sést

Fram hefur komið að mikið var um útstrikanir víða, einkum þó hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu í Reykjavík og í Suðurkjördæmi. Ekki er ljóst hvort þessar útstrikanir hafa áhrif á röð frambjóðenda á listum.

Engin nöfn hafa verið nefnd formlega en röð þingmanna í einstökum kjördæmum gæti breyst. Að sögn Ástráðs Haraldssonar, formanns landskjörstjórnar er ekki víst að fyerir liggi fyrr en á morgun eða þriðjudag, hvort og þá hvaða áhrif útstrikanir hafa.

Inni og úti í nótt

Talsverðar sviptingar urðu á því í nótt og morgun hverjir væru líklegir þingmenn. Þær síðustu urðu þegar lokatölurnar voru birtar í Norðausturkjördæmi í morgun en þá var ljóst að Sjálfstæðisflokkur hafði unnið mann af Framsóknarflokki.

Við það varð til hringekja, sem leiddi til þess að Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, missti þingsæti í Suðvesturkjördæmi, sem hann hafði haft síðari hluta nætur, í hendur Jóns Gunnarssonar. Þá féll einnig Huld Aðalbjarnardóttir, Framsóknarflokki, af lista yfir þingmenn Norðausturkjördæmis en í stað hennar kom Jónína Rós Guðmundsdóttir, Samfylkingu.

Nýir þingmenn

Vinstrihreyfingin-grænt framboð:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Suðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Norðvesturkjördæmi, Björn Valur Gíslason, Norðausturkjördæmi,  Svandís Svavarsdóttir, Reykjavík suður,  Lilja Mósesdóttir, Reykjavík suður, Ásmundur Einar Daðason, Norðvesturkjördæmi.

Sjálfstæðisflokkur:
Ásbjörn Óttarsson, Norðvesturkjördæmi, Unnur Brá Konráðsdóttir, Suðurkjördæmi, Tryggvi Þór Herbertsson, Norðausturkjördæmi.

Framsóknarflokkur:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Reykjavík norður, Gunnar Bragi Sveinsson, Norðvesturkjördæmi, Guðmundur Steingrímsson, Norðvesturkjördæmi, Sigurður Ingi Jóhannsson, Suðurkjördæmi, Vigdís Hauksdóttir,Reykjavík suður.

Borgarahreyfingin:
Þráinn Bertelsson, Reykjavík norður, Þór Saari, Suðvesturkjördæmi, Birgitta Jónsdóttir, Reykjavík suður, Margrét Tryggvadóttir, Suðurkjördæmi. 

Samfylkingin:
Valgerður Bjarnadóttir,Reykjavík norður, Ólína Þorvarðardóttir, Norðvesturkjördæmi, Oddný G. Harðardóttir, Suðurkjördæmi, Róbert Marshall, Suðurkjördæmi, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Norðausturkjördæmi, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Norðausturkjördæmi,  Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Reykjavík suður, Skúli Helgason, Reykjavík suður, Magnús Orri Schram, Suðvesturkjördæmi.

Fallnir þingmenn

Þeir þingmenn, sem sóttust eftir endurkjöri en náðu ekki, eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Möller, Sigurður Kári Kristjánsson og Kjartan Ólafsson,sem sátu á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG, og Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson og Karl Matthíasson, þingmenn Frjálslynda flokksins.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent / Kosningar — Fleiri fréttir

Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Laugardaginn 13. mars
Fimmtudaginn 11. mars
Miðvikudaginn 10. mars
Sunnudaginn 7. mars
Laugardaginn 6. mars
Föstudaginn 5. mars
Þriðjudaginn 2. mars
Sunnudaginn 28. febrúar
Laugardaginn 27. febrúar
Föstudaginn 26. febrúar
Fimmtudaginn 25. febrúar
Miðvikudaginn 24. febrúar
Þriðjudaginn 23. febrúar
Mánudaginn 22. febrúar
Laugardaginn 20. febrúar
Föstudaginn 19. febrúar