Grímsvötn verða líklega næsta eldstöðin á Íslandi til að gjósa. Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur Veðurstofunnar á sviði jarðskorpuhreyfinga, ræddi við mbl.is um Grímsvötn og nokkrar aðrar virkar eldstöðvar. Meira
Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert samanburð á hraungosum sem orðið hafa hér á landi síðasta aldarfjórðunginn. Meira
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir nýju sprunguna sem opnaðist í nótt vera innan þess hættusvæðis sem kynnt var á fundi vísindaráðs fyrr í vikunni. Vefmyndavél mbl.is við gosstöðvarnar í Geldingadölum náði myndum af því þegar ný sprunga opnaðist þar í nótt. Meira
Það er ný saga og gömul að fólk flykkist að þar sem tök eru á að komast í tæri við eldgos. Stórbrotið sjónarspil náttúrunnar heillar, en getur haft hættur í för með sér, umfram það sem fylgir hamförunum sjálfum. Meira
Kvikugangurinn heldur áfram að stækka og er mesta kvikuflæðið bundið við suðurenda hans sem nær frá Keili að Fagradalsfjalli. Á meðan kvika heldur áfram að flæða inn í ganginn þarf að reikna með að það geti gosið á svæðinu. Meira
„Eldur upp kom í Litla-Héraði og eyddi allt héraðið. Höfðu þar áður verið 70 bæir. Lifði engin kvik kind eftir utan ein öldruð kona, og kapall.“ Svo stendur ritað í Oddverjaannál, um þær hamfarir sem fylgdu eldgosinu í Hnappafellsjökli í júní árið 1362. Meira
Lagaumhverfi nafngifta þegar ný náttúrufyrirbrigði verða til hefur tekið töluverðum breytingum á síðastliðnum árum og meiri áhersla er nú lögð á samstarf við heimamenn. Þetta segir Hallgrímur J. Ámundason, Stofustjóri Nafnfræðisviðs Árnastofnunar. Meira
Vísindamenn Veðurstofu Íslands telja að lítið eldgos sé hafið undir sporði Dyngjujökuls. Þar sem atburður er hafinn hefur Ríkislögreglustjóri ákveðið að færa hættustig upp á neyðarstig og Veðurstofa Íslands hefur fært litakóða vegna flugs upp á rautt, sem þýðir að flug er nú bannað yfir svæðinu. Meira
Cessna-flugvél sem brotlenti við Syðra-Langholt í Hraunamannahreppi í apríl 2010 var of þung og í of lítilli hæð að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Flugmaðurinn hafði ekki reynslu af því að fljúga þessari gerð flugvélar, undirbúningur fyrir flugið var takmarkaður og flogið var í lítilli hæð. Meira
Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, telur að lítið eldgos hafi orðið í Kötlu í sumar þegar talsvert hlaup varð í Múlakvísl. Meira
Ritstjórn Morgunblaðsins, fréttastofa RÚV og fréttastofa Stöðvar 2 fá sameiginlega tilnefningu til blaðamannaverðlaunanna í flokki bestu umfjöllunar ársins 2010 fyrir umfangsmikla og vandaða en ólíka umfjöllun um eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Meira
Almannavarnastig hefur verið lækkað frá neyðarstigi niður á óvissustig vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Meira
Vísindatímaritið Nature birtir á morgun, fimmtudag, grein um eldgosin í Eyjafjallajökli og jarðskorpuhreyfingar tengdar þeim. Þar kemur m.a. fram að samspil kvikuinnskots undir austurhluta fjallsins við bergkviku undir fjallinu miðju virðist hafa hleypt gosinu í vor af stað. Meira
Dagfinnur Stefánsson, sem var flugmaður á Geysi sem fórst á Bárðarbungu árið 1950, keypti fyrsta Neyðarkall björgunarsveita í dag. Þar með hófst formlega þessi árlega fjáröflun björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Meira
„Við fáum það út að gjóska sem féll hér á landi sé um 140 milljónir rúmmetra. Í Gígjökulslóninu eru allt að 25 milljónir rúmmetra, mestmegnis gjóska. Hraunið sem rann er nálægt 25 milljónum rúmmetra. Það er álíka mikið og hraunið sem kom upp í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson prófessor um magn fastra gosefna sem komu upp í gosinu í Eyjafjallajökli. Meira
Efnahagsbatanum seinkar um einn ársfjórðung ef marka má nýja útgáfu Seðlabanka Íslands á Peningamálum. Væntir Seðlabankinn þess að efnahagsbatinn frestist til þriðja ársfjórðungs og samkvæmt því mun efnahagssamdrátturinn hér á landi vara í tíu ársfjórðunga, 2,5 ár sem er lengra en í öðrum iðnríkjum. Meira
Skólastarf í Hvolsskóla hefur gengið ótrúlega vel þrátt fyrir nálægðina við spúandi eldfjöll, vatnsflóð og þrúgandi öskuregn og sorta, að sögn Sigurlínar Sveinbjarnardóttur skólastjóra. Stórir hlutar starfssvæðis skólans hafa þrisvar verið rýmdir, tvisvar um miðjar nætur og einu sinni um kvöld. Meira
„Vatnsmagn frá eldstöðinni í toppi Eyjafjallajökuls er mikið og gosið er miklu stærra en gosið á Fimmvörðuhálsi,“ sagði í tilkynningu frá Almannavörnum í gærmorgun. Meira
„Ég hef aldrei séð jafn stóran mökk. Hann er margfalt stærri en mökkurinn sem kom í gosinu á Fimmvörðuhálsi.“ Þetta segir Jónas Erlendsson bóndi í Fagradal sem fór upp á Reynisfjall í morgun en þar er gott útsýni til gosstöðvanna. Meira
Vatnsborð Markarfljóts hefur á stuttum tíma hækkað um einn metra við gömlu Markarfljótsbrúna. Eldgos er augljóslega hafið undir Eyjafjallajökli og vatn flæðir undan Gígjökli. Það bendir til þess að það gjósi í toppgíg jökulsins. Meira