Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig í næstu viku. Þá býst hún við því að skilyrði um fasteignalán verði hert. Meira
Aðalástæða þess að efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrir Ísland bar tilætlaðan árangur var mikill og breiður pólitískur stuðningur á Íslandi til að hrinda áætluninni í framkvæmd og innleiða hana. Þetta sagði Poul M. Thomsen, núverandi framkvæmdastjóri Evrópudeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ræðu sinni á fyrirlestri í Hörpu í dag. Meira
Fjármálaráðherrar evruríkjanna funda nú í Brussel og freista þess að ná saman um nýjan lánapakka til handa Grikkjum en gríska þingið samþykkti í síðustu viku sársaukafullar aðhaldsaðgerðir til að uppfylla kröfur hinna evrulandanna. Meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ákvað í gær að frá og með næsta ári verði hluti gjaldeyrisvaraforða sjóðsins í kínverska gjaldmiðilinum júan ásamt bandarískum döllurum, evrum, japönskum jenum og breskum pundum. Meira
InDefence kom á fund efnahags- og viðskiptanefndar í dag þar sem farið var yfir alvarlegar athugasemdir hópsins við stöðugleikaskilyrðin og áætlanir um afnám gjaldeyrishafta á almenning. Hópurinn hefur spurt hvort verið sé að ganga hagsmuna kröfuhafa. Seðlabankastjóri svaraði fyrir málið. Meira
Þýsk stjórnvöld telja nauðsynlegt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taki þátt í þriða lánapakkanum til handa Grikkjum. Meira
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur varið umdeildar ákvarðanir sínar um að birta tvær svartar skýrslur um skuldastöðu gríska ríkisins þar sem kallað er eftir því að evruríkin létti verulega skuldabyrði landsins. Framkvæmdastjóri sjóðsins segir nauðsynlegt að endurskipuleggja skuldirnar. Meira
Það er allt á suðupunkti í Aþenu og víðar í Evrópu. Mótmælendur hafa safnast saman fyrir utan þinghúsið þar sem samkomulag við lánardrottna er rætt af þingmönnum. Forseti þingsins hvetur þingmenn til að standa saman og hafna samkomulagi sem virðist byggt á sandi samkvæmt skýrslu AGS. Meira
Leiðtogar Grikklands, Frakklands, Þýskalands og Evrópusambandsins hafa lagt fram málamiðlun í viðræðum við Grikki um skuldavanda landsins. Meira
„Þær spurningar sem Grikkir standa frammi fyrir núna um helgina varða miklu meira en bara fjárhag gríska ríkisins, þær varða lýðræðisþróun í Evrópu og lýðræðisþróun almennt í heiminum,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, varaþingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, á Alþingi í dag. Meira
Fjármálaráðherra Grikklands, Yanis Varoufakis, staðfesti í morgun að greiðsla færi ekki fram í dag til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í samræmi við lánaskuldbindingar landsins. Greiðslan nemur 1,6 milljörðum evra. Meira
„Grikkir hafa frekar tekið skref afturábak. Bilið á milli deiluaðila er frekar að stækka en minnka,“ sagði Wolfgang Schäuble, fjármálaráðherra Þýskalands, í dag um viðræður grískra ráðamanna við alþjóðlega lánadrottna Grikklands um skuldavanda landsins. Ekki tókst að landa samkomulagi í dag um skilyrði þess að Grikkir fái frekari lánafyrirgreiðslur. Meira
Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Christine Largarde, útilokar ekki lengur að til þess kunni að koma að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Hún segir í samtali við þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung í dag að það væri möguleiki en bætti við að enginn vildi þó sjá það gerast. Meira
Bankastjórn seðlabankans í Úkraínu hefur ákveðið að snarhækka stýrivexti landsins, úr 19,5 prósentum í 30 prósent. Fyrir einungis mánuði stóðu þeir í 14% og hafa því rúmlega tvöfaldast á stuttum tíma. Meira
Segja má að stjórnvöld í Grikklandi séu í kapphlaupi við tímann hvað varðar viðræður um endurskoðun lánaskilmála björgunarpakkans svokallaða, en gildistími hans rennur út í þessari viku. Þeir hafa tryggt sér fjögurra mánaða framlengingu, sem er því skilyrði háð að þeir leggi fram lista yfir umbætur fyrir klukkan 23 í kvöld. Meira
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi segir í lokayfirlýsingu sinni að helsta viðfangsefnið á sviði hagstjórnar á Íslandi sé að styrkja fjárhagsleg tengsl landsins við umheiminn. Árangur sé forsenda fyrir hagvexti og hagkvæmari fjárfestingarkostum. Meira
Á næstunni verður áætlun stjórnvalda um afnám hafta, „Project Irminger“, hrundið í framkvæmd. Takist ekki að ljúka uppgjöri slitabúanna með nauðasamningum í árslok verður gripið til annarra úrræða. Þar koma fleiri leiðir til álita en gjaldþrotaskipti. Meira
Halda ætti í þær breytingar sem gerðar voru á lögum um Seðlabankann árið 2009 við fyrirhugaða endurskoðun laganna, þar á meðal ákvæði um val á æðstu yfirmönnum hans. Þetta kemur fram í skýrslu framkvæmdastjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland. Meira
Það er margt sem bjátar á í bandarísku efnahagslífi þessi dægrin. Ekki sér fyrir endann á lokunum sem staðið hafa í 3 daga, sama hvað Barack Obama æsir sig. Á sama tíma vara fjármálaráðuneytið og AGS við þeim „hamförum“ sem orðið geti verði skuldaþak ríkissjóðs ekki hækkað á næstunni. Meira
Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í dag 84,7 milljóna evra lánafyrirgreiðslu til Kýpur að lokinni fyrstu yfirferð á frammistöðu ríkisins samkvæmt samkomulagi við sjóðinn. Meira