Drukkinn ökumaður kastar af sér vatni á götu

Drukkin kona, sem ók bifreið um götur Lübeck í Þýskalandi, hefur misst ökuleyfið eftir að hún kastaði af sér vatni fyrir utan bifreið sína á fjölfarinni götu.

Lögreglu var gert viðvart af ökumanni sem ók á eftir konunni, en hún virtist hafa fremur takmarkaða stjórn á bifreiðinni. Ökumaðurinn elti konuna áfram og þegar bifreiðar þeirra stöðvuðust á umferðarljósum opnaði konan hurðina á bifreiðinni, gekk út og pissaði fyrir framan fjölda fólks, að sögn ananova.com.

Lögreglan hafði hendur í hári hennar þegar hún hugðist halda ferð sinni áfram. Kom í ljós að konan hafði of hátt áfengismagn í blóði. Konan missti ökuleyfið í þrjá mánuði hið minnsta en í millitíðinni verður mál hennar tekið fyrir af dómstólum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson