Karlinn í gæslu meðan konan verslar

Konur í Hamborg eiga góða daga í vændum en nú hillir undir, að þær þurfi ekki framar að draga á eftir sér nöldrandi eiginmenn í verslunarferðum.

Krá ein í borginni, Nox Bar, hefur komið upp sérstöku "karlalandi" þar sem boðið er upp á bjór, heita rétti, knattspyrnuleiki í sjónvarpi og ýmislegt annað til að hafa ofan af fyrir körlunum meðan eiginkonur eða vinkonur þeirra stunda það, sem þeim þykir skemmtilegast, verslunarferðir. Sagði frá þessu á fréttavef BBC, breska ríkisútvarpsins, í gær.

"Konurnar fá kvittun frá okkur þegar þær koma með karlana og verða síðan að framvísa henni þegar þær koma til að sækja þá," sagði kráareigandinn, Alexander Stein. Sagðist hann hafa fengið hugmyndina frá konu, sem oft hefði skilið karlinn sinn eftir hjá honum meðan hún fór í búðir.

"Henni fannst það svo stressandi að vera með hann og þetta reyndist vera lausnin fyrir þau bæði," sagði Stein.

Fyrir 10 evrur, um 890 ísl. kr., fá karlarnir eina heita máltíð, tvö bjórglös, knattspyrnu í sjónvarpi og mega leika sér í tölvuleikjum.

"Í síðustu viku fengu þeir að spreyta sig á fjarstýrðum bíl og í næstu viku verður það lítil kappakstursbraut."

Vilja jafnvel vera lengur

Stein segir, að fyrstu vikuna hafi hann verið með 20 karla í gæslu en síðastliðinn laugardag hafi verið komið með 27. Segir hann, að sumir hafi verið dálítið feimnir í fyrstu en samlagast fljótt og verið hinir ánægðustu þegar þeir voru sóttir, vildu jafnvel vera lengur.

"Þetta er miklu skemmtilegra en að ráfa um verslanir, svo mikið er víst," sagði einn karlanna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson