Örn annar og setti Norðurlandamet

Örn Arnarson var rétt áðan að vinna til silfurverðlauna í 100 metra baksundi á Evrópumótinu í sundi í 25 metra laug í Dublin á Írlandi. Örn synti á 51,74 sekúndum og setti nýtt Norðurlandamet en Íslandsmet hans í greininni sem hann setti fyrir réttu ári síðan var 51,91 sek. Þjóðverjinn Thomas Ruprath varð Evrópumeistari en sigurtími hans var 50,72 sek.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert