Bandarískur blaðamaður sem hefur búið hér og unnið í sex ár fær ekki atvinnuleysisbætur, eftir að hann missti vinnuna í nóvember. Ástæðan er sú að atvinnuleyfi hans var einungis tímabundið, til árs í senn og bundið vinnuveitandanum. Það féll því úr gildi þegar honum var sagt upp.