Ný rannsókn: hormónar hafa áhrif á rúmskynjun
Sumar konur kunna að eiga í erfiðleikum með að lesa á landakort og leggja bílum vegna þess að þær fengu lítið af hormóninu testósteróni í móðurkviði, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Þýskir vísindamenn hafa fundið vísbendingar um að testósterónmagn hafi áhrif á rúmskynjun.
Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC.
Niðurstöður rannsóknar þeirra eru birtar í tímaritinu Intelligence. Vísindamennirnir könnuðu rúm-, talna- og tungumálsskyn 40 sjálfboðaliða. Einnig var borin saman lengd vísifingurs og baugfingurs á hverjum sjálfboðaliða fyrir sig, en vísindamennirnir segja að tengsl séu á milli lítils magns testósteróns og tiltölulega stutts baugfingurs. Hjá konum eru þessir tveir fingur yfirleitt jafn langir, en hjá körlum er baugfingurinn yfirleitt mun lengri en vísifingurinn.
Körlum gekk í flestum tilvikum betur en konum þegar rúmskynjun var prófuð, en konur sem voru með baugfingur lengri en vísifingur náðu betri árangri en konur með fingurna nokkurnvegin jafn langa.
Dr. Petra Kempel, sem stjórnaði rannsókninni, segir að munurinn á milli einstaklinganna innan hópsins sem rannsakaður var hafi reynst „eftirtektarverður“. Vísindamennirnir taka þó fram, að niðurstöðunum verði að taka með fyrirvara vegna þess að einungis hafi verið tekið eitt munnvatnssýni úr hverjum þátttakanda og ekki hafi verið tekið tillit til tíðarhrings kvennanna, sem haft geti áhrif á hormónamagn.
Til baka








Senda inn efni

