[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 1.9.10
2 13 15 24 26 46
14 31   30
Jóker
7 2 4 7 4  
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Fýlshólar, 111 Reykjavík Fýlshólar Reykjavík
Austurbyggð
, 801 Selfoss (dreifbýli) Austurbyggð Selfoss (dreifbýli)
Leiðhamrar, 112 Reykjavík Leiðhamrar Reykjavík
Aragata, 101 Reykjavík Aragata Reykjavík
Eiríksgata, 101 Reykjavík Eiríksgata Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Eskiholt, 210 Garðabær Eskiholt Garðabær
Dalsel, 109 Reykjavík Dalsel Reykjavík
Rauðalækur, 105 Reykjavík Rauðalækur Reykjavík
Sörlaskjól, 107 Reykjavík Sörlaskjól Reykjavík
Það er margra ára nám að verða útlærður vindlagerðarmaður enda þykja hinir handofnu kúbönsku vindlar vera með þeim allra bestu í heiminum.

Það er margra ára nám að verða útlærður vindlagerðarmaður enda þykja hinir handofnu kúbönsku vindlar vera með þeim allra bestu í heiminum. mbl.is/Þorkell

Tækni & vísindi | mbl.is | 4.10.2006 | 21:26

Vindlar og kynlíf auka lífslíkur íbúa Kúbu

Fjöldi manns á Kúbu hefur náð tíræðisaldri og gott betur og þakkar fólkið langlífi sínu að hafa hætt að drekka áfengi en veitt sér vel af kaffi, vindlingum og stundað mikið kynlíf. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem var gerð á 54 einstaklingum af þeim rúmlega 100 sem eru orðnir 100 ára eða eldri og búa í Villa Clara-héraðinu á Kúbu.

Yfir 60% þeirra áttu foreldra sem einnig náðu að verða eldri en 100 ára.

Um 11,2 milljónir manna búa á Kúbu og þar búa u.þ.b. 3.000 manns sem hafa náð að lifa í heila öld eða lengur.

Rannsóknin leiddi í ljóst að líf eldri borgaranna er agað án þess að vera strangt.

Enginn þeirra sem tók þátt í könnuninni drakk vín en þátttakendur sögðust elska kaffi og vindla, sem þeir neyttu í miklu magni.

Þá var fólkið með heilbrigðan áhuga á ýmsum hlutum t.a.m. kynlífi að sögn Nancy Nepomuceno sem stýrði rannsókninni.

Flestir eru skýrir í kollinum, lifa góðu lífi og starfa með höndunum í sveitahéruðum landsins.

Nánast allir sem tóku þátt í rannsókninni sögðust borða fisk, egg, mjólk, hvítt kjöt og grænmeti, sem var eldað með því að nota lítið salt og önnur krydd.

Meðallífslíkur á Kúbu eru 76 ár, en í Villa Clara-héraðinu þar sem rannsóknin var gerð, eru lífslíkurnar 78 ár.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tækni & vísindi — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 31. ágúst
Mánudaginn 30. ágúst
Sunnudaginn 29. ágúst
Laugardaginn 28. ágúst
Föstudaginn 27. ágúst
Fimmtudaginn 26. ágúst
Miðvikudaginn 25. ágúst
Þriðjudaginn 24. ágúst
Mánudaginn 23. ágúst
Sunnudaginn 22. ágúst
Fimmtudaginn 19. ágúst
Miðvikudaginn 18. ágúst
Mánudaginn 16. ágúst
Sunnudaginn 15. ágúst
Laugardaginn 14. ágúst
Miðvikudaginn 11. ágúst
Þriðjudaginn 10. ágúst
Mánudaginn 9. ágúst
Sunnudaginn 8. ágúst