Súkkulaði hefur meiri áhrif á heilann en ástríðufullur koss
Bloggað um fréttina
-
Sóldís Fjóla KarlsdóttirÞví segi ég það.....
-
Árný SesseljaSko ég hef alltaf sagt það !!
-
Unnur SólrúnVafamál
-
Jón SvavarssonÞetta er allt saman UNAÐSLEGT !!!
-
Þorsteinn GunnarssonEn ef kossinn hefði komið á undan?
-
Sigríður GunnarsdóttirAllra meina bót
Súkkulaði sem fær að bráðna á tungunni hefur meiri áhrif í heilanum en ástríðufullur koss, að því er vísindamenn segja. Fylgdust þeir með hjartslætti og heilastarfsemi í sjálfboðaliðum á þrítugsaldri sem létu súkkulaði bráðna uppi í sér og kysstust síðan.
Frá þessu greinir fréttavefur BBC.
Súkkulaðið olli meiri og langvinnari vellíðunaráhrifum en kossinn, og jókst hjartsláttur sjálfboðaliðanna um helming er þeir nutu súkkulaðisins.
Stjórnandi rannsóknarinnar segir að í mörgum tilvikum hafi áhrifin af súkkulaðinu varað fjórfalt lengur en áhrifin af ástríðufullum kossi. Fyrri rannsóknir hafi leitt í ljós að súkkulaði hafi geðvirk áhrif, en ef það fái að bráðna á tungunni kunni áhrifin að verða enn meiri.
Til baka








Senda inn efni

