
AP
„Samkynhneigðarsprengja" hlýtur Ig Nóbelsverðlaun
Bloggað um fréttina
-
Guðni Már HenningssonUpp með hendur og niður með buxur...
-
Jóhannes RagnarssonKynvillusprengja í gúllasinu.
-
Herdís SigurjónsdóttirHáðungaverðlaun Nóbels
-
Þórunn Óttarsdóttirflott að vera vísindamaður
-
Helgi Már BarðasonInnihald: Kúadelluvanilla ...
-
Ásthildur Cesil ÞórðardóttirHahahahahahahahaha...
-
Sóldís Fjóla KarlsdóttirStinningarlyf.....
Tímamótarannsóknir á „samkynhneigðarsprengju," sem gerir að verkum að óvinahermenn fyllast óviðráðanlegri kynlöngun til hvers annars, eru meðal þeirra „vísindaafreka" sem hljóta hin svonefndu Ig Nóbelsverðlaun í ár. Einnig var verðlaunuð tilraun til að lækna þotuþreytu í hömstrum með stinningarlyfi.
Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC, en Ig Nóbelsverðlaunin eru háðungarverðlaun sem veitt eru ár hvert í aðdraganda veitingar hinna eiginlegu Nóbelsverðlauna. Verðlaunaafhendingin fór fram í Harvardháskóla í gærkvöldi, en til verðlaunanna var stofnað 1991, af vísindatímaritinu Annals of Improbable Research í því skyni að vekja athygli á afrekum sem „fá fólk fyrst til að hlæja, en vekja það síðan til umhugsunar."
Ennfremur voru verðlaun veitt fyrir vinnslu á vanillu úr kúadellu og rannsóknir á aukaverkunum sverðagleypinga. Þau síðastnefndu hlaut Dan Meyer, framkvæmdastjóri Alþjóðlegu sverðagleypasamtakanna, en grein hans „Sword Swallowing and its Side-Effects," birtist í British Medical Journal.
Höfundar rannsóknarinnar á efnum sem vekja eiga samkynhneigð meðal óvinahermanna eru í bandaríska flughernum, en enginn þeirra mætti til verðlaunaveitingarinnar því að ekki tókst að hafa uppi á þeim.
Tilraunin sem gerð var með að gefa hömstrum stinningarlyfið Viagra til að lækna þá af þotuþreytu gaf góða raun.
Til baka








Senda inn efni

